Allir 6 tommu bátar á Subway geta orðið að ljúffengum salötum. Stundum þarf maður eitthvað léttara sem er þó stútfullt af góðri næringu. Á Subway getur þú valið úr fjöldanum öllum af fersku grænmeti, áleggi og sósum. Við settum saman nokkrar tillögur og hvetjum þig til þess að prófa!
Sjáumst á Subway
Já takk. Við skorum á þig að prófa. Túnfisksalatið fer sérlega vel með rauðlauk, ólívum, tómötum, spínati og káli. Prófaðu líka að bæta við beikoni! Mörgum finnst það ekki hljóma vel, en við nánast lofum því að þetta smelli saman. Hún Radda okkar sem hefur verið verslunarstjóri á Subway í yfir 15 ár hefur talað um þessa samsetningu frá upphafi og hún veit hvað hún syngur.
Kjúklingurinn er hægelduð bringa með sérvalinni kryddblöndu, sem síðan er rifin í bita. Einstaklega safaríkur og meyr kjúklingur sem er virkilega góður í salatið. Prófaðu rauðvínsedik og ólífuolíu, parmesan og oregano krydd. Hunangssinnepið fer líka vel með.