Um Subway

Fyrsti veitingastaður Subway á Íslandi var opnaður árið 1994. Subway hefur því um árabil séð um að gleðja svanga Íslendinga sem vilja að saman fari hollusta og ljúfur skyndibiti. Frumkvöðull að rekstri staðarins var Skúli Gunnar Sigfússon og stofnaði hann fyrsta staðinn í Faxafeni í Reykjavík.
 
Í dag eru Subway staðirnir alls 15 á Íslandi. Fyrir utan höfuðborgarsvæðið er staðirnir fjórir, Reykjanesbæ, Akureyri, Selfossi og Akranesi.
 
Subway á Íslandi tilheyrir alþjóðlegri keðju rúmlega 41 þúsund veitingastaða í yfir 100 löndum um allan heim.
 
Markmið Subway er að bjóða upp á fjölbreyttan og bragðgóðan skyndibita með hollustu að leiðarljósi. Lögð er áhersla á að matseðillinn bjóði upp á bragðgóða valkosti sem henta heilbrigðum lífsstíl.
 
Strangt gæðaeftirlit tryggir að matvæli uppfylla ströngustu skilyrði hvað varðar ferskleika og gæði. Upplýsingar um ofnæmisvalda og innihaldsefni eru aðgengilegar á vefnum og þannig stuðlar Subway að vel upplýstu vali þegar kemur að skyndibitakaupum.
 
Til þess að tryggja besta mögulega hráefni þurfa birgjar Subway, innlendir sem og erlendir, að standast ströng skilyrði. Brauðin eru t.a.m. bökuð nokkrum sinnum á dag og það sama á við um kökurnar.
 
Grænmetið kemur ferskt og er skorið niður daglega á hverjum stað.

SKRÁÐU ÞIG Á PÓSTLISTANN